Náttúruleg hráefni og sveitarómatík með fjarlægum ómi af pönki og prjáli eru leiðarstef íslenska hönnunarfyrirtækisins Farmers Market en undir því merki hefur Bergþóra Guðnadóttir hannað föt og fylgihluti fyrir konur, karla og börn síðan haustið 2005. Innblástur er sóttur í ræturnar, hina einstöku íslensku arfleið þar sem menn og dýr hafa lifað í sambýli við harðger náttúruöfl öldum saman.
Í okkar fámenna landi er nóg að líta aftur að siðaskiptum til að finna sameiginlega forfeður allra Íslendinga og gerir sú staðreynd núlifandi eyjarskeggja sannarlega að einni stórri fjölskyldu. Íslensk borgarmenning er afar ung að árum og eiga flestir borgarbúar afa, ömmur, frændur eða frænkur sem hafa búið í sveit og ræktað sauðfé. Því er oft haldið fram í sögulegu samhengi að án hinnar harðgeru sauðkindar sem gaf af sér kjöt, ull, gærur og mjólk hefði íslensk þjóð ekki lifað af aldir harðinda og fátæktar. Þessi magnaða saga er innblásturinn að hönnun okkar.