5. janúar 2008
Farmers Market valið í úrslit Brand New Awards
Í tengslum við eina stærstu sýningu heims í útivistar- og sportbransanum – ISPO Munchen, er haldin samkeppni ungra fyrirtækja og vörumerkja sem þykja koma með ferska strauma og spennandi nýjungar á markaðinn. Að þessu sinni hefur Farmers Market – Iceland verið valið “Finalist” í samkeppninni og er því úthlutað sérsvæði á sýningunni sem nefnist Brand New Village (í sýningarhöll 3) og er þar í góðum hópi í úrslitum með hönnuðum skíðabúnaðar, torfæruhjóla o.fl.
