3. janúar 2008
Farmers Market er kolefnisjafnað fyrirtæki
Í samvinnu við Kolvið (www.kolvidur.is) hefur Farmers Market kolefnisjafnað sig, þ.e. jafnað kolefnislosun sína vegna samgangna og sendinga sem eru óhjákvæmilegur fylgifiskur í reksri fyrirtækisins. Er þetta þáttur í umhverfisstefnu okkar sem einnig felst m.a. í framleiðslu á fjölnnýtanlegum (multi functional) flíkum úr náttúrulegum hráefnum. Einnig er leitast við eftir föngum að vinna með fyrirtækjum sem hafa vist- og mannvæn gildi í hávegum. Lesið nánar um Kolvið og bindingu koldíoxíðs (CO2) vegna útblásturs hér